Jæja þá er maður komin heim
Hér kemur ferðasagan
Á þriðjudeginum var farið snemma að sofa, enda dauð þreytt eftir ferðalagið og matinn hjá Hauk frænda Tryggva, enda enginn smá matur og vín þar, svo ætluðum við að vakna snemma á miðvikudeginum og fara að spóka okkur á strikinu, en þar sem við Tryggvi gleymdum að stilla símana okkar á danskann tíma, þá vöknuðm við ekki á réttum tíma, og Sigrún Ella og Fanný, sendu okkur sms og við vöknuðum bara ekki, og svo komu þær og börðu á dyrnar og við vöknum ekki heldur og þær héldu að við hefðum farið bara út, en svo hringdu þær loks þegar þær mundu koðan fyrir Ísland, og þá var korter þanngað til að morgunmaturinn væri búin, þannig að við stukkum á fætur, og fengum okkur að borða, og svo aftur upp að taka okkur til fyrir röltið, og svo var farið á strikið, og þegar þangað var komið, vildi Sigrun fara strax inn í búð en Tryggvi sagði heyrðu sko við erum ekki búinn að labba neitt, og á bara að hlaupa strax í fyrstu búðina sem þið sjáið, þannig að við ákvaðum að halda aðeins áfram labbi, og svo komum við að H M og þá var ekki aftur snúið, þar var sko verslað og ég veit ekki hvað við vorum lengi þarna inni, en þegar ég gat ekki haldið á fleiri fötum fór ég að borga, enda Tryggvi frekar þreyttur á okkur og við ákvaðum að fara með alla pokana upp á hotel, og fórum svo aftur á strikið, og það var verslað eitthvað meira, svo ætluðum við að hitta Una Hrafn frænda þeirra systkina og við hittum hann á lestarstöðini og svo vorum við svo þreytt eftir allt labbið að við ákvaðum að fara að fá okkur að borða, en eitt skiliði var sett að það átti ekki að labba langt, enda við alveg búin í löppunum, fórum að borða á mexíkóskan stað og svo heim á hotel að sofa, enda ætuðum í Tívoli næsta morgun og hitta svo Una aftur á morgun.
Síðan var vaknað snemma og fengið sér að borða og upp að taka sig til fyrir Tívolí og svo var lagt af stað í Tívolí, enda var það stutt frá hótel Nebó, og svo var gengið um Tívolí og svo fórum við í rússíbana og líka svona stóra rólu og við vorum ím Tívolí frá 11 til 16,30 og hittum Una og tókum lest í fisketorvet sem er verslunnarmiðstöð, og þar var líka HM og þar var verslað líka, og verslað og verslað og svo var lababð á kongsinsnytorg og nýhavn og borðað þar og svo var haldið heim, enda fæturnar búnar.
Föstudagur var runnin upp og Haukur frændi mætti á hótelið okkar og ætlaði að sýna okkur eitthvað skemmtilegt, fórum að Amilienborg og sáum vaktaskipti hjá hermönnum drottingar og skoðuðum Rosenborgargarð, og líka svarta demantinn eins og það er kallað sem er bókasafn, og svo kvöddum við Hauk enda hann að fara að vinna, og við ákvaðum að fara á strikið og við fórum í Zöru og ég fór á kostum þar og gerði mig að hálfvita eins og mér einni er lagið, enda svolítið þreytt, en þannig var það að það eru rúllustigar út um allt og ég reyndi að komast upp í rúllustiga sem maður fer í niður, já ég veit þið getið rétt ímyndað ykkur hvernig ég var og ég reyndi þetta þrisvar að komast upp í þessum stiga, en skildi ekki hvernig þetta var en hoppaði upp í 3 þrep og endaði alltaf á gólfinu og þegar ég fattai hvað ég var að gera dó ég úr hlátri, og enginn var með mér þarna sem betur fer.
Svo fórum við Tryggvi í Tívolí aftur og keyptum okkur passa sem kostaði 2000 og gekk í öll tæki eins og maður vill og við fórum að Tívolíast og fórum í gylta turninn sen er um 40 metra hár og maður er í frjálsu falli niður, brjálað stuð en mín var nú smá hrædd og öskraði af líf og sálarkröftum og svo fórum við að sofa.
Laugardagur var byrjað að borða og tékka sig út en geymdum töskurnar á hótelinu og fórum á vaxmyndasafn sem var mjög gaman að sjá hvað hægt er að gera fólk eðlilegt og svo var svona hrollvekjusalur og mjög gaman, og stelpurnar sem voru áeftir okkur öskruðsvoog við hlógum og hlógum og svo fórum við í listasafn sáum múmíur og gamla rómenska hluti og svo fórum við síðustu ferðina í HM og aðeins verslað þar og svo fórum við á flugvöllinn og biðum eftir að komast heim og svo keyrðum við heim um nóttinna og ég og Tryggvi skiptumst á að keyra, enda mjög þreytt og alveg að sofna, og sunnudagur fór í að slappa af og gera mest lítið.
Jæja nóg í bili
Kveðja Silley Hrönn